|
22.01.2012 16:45:26 / siggi
Aðalfundurinn tókst vel þó aðeins hafi mætt 8 félagar. Enginn fulltrúi kom frá Ferðafélagi Íslands. Stjórn og ferðanefnd var endurkosin og að auki var nú í fyrsta skipti kosið í húsnefnd sem mun starfa með stjórn í málefnum Deildarárskóla. Í húsnefnd voru kosnir Karl Pálmason og Sigurjón Eyjólfsson. Á fundinum var ákveðið að gefa fljótlega út fréttabréf til að kynna starf deildarinnar. Einn nýr félagi bættist í hópinn á fundinum.
Sigurður Hjálmarsson form.
»
21.01.2012 10:51:25 / siggi
Aðalfundur Ferðafélags Mýrdælinga árið 2012 verður haldinn á Ströndinni í Víkurskála í dag kl. 14:00 Stjórnin.
»
21.11.2011 18:17:50 / siggi
Ferðaáætlun 2012 er nú komin hér inn á heimasíðuna. Smellið á linkinn hér vinstra megin og skoðið.
F.h. ferðanefndar Sigurður Hjálmarsson form.
»
07.09.2011 17:44:52 / siggi
Vinnu lauk í dag um kl. 16:00 en þá var síðasti glugginn kominn í og þakrennur komnar upp. Mikið afrekað þessa tvo daga og fyrsta máltíðin elduð í endurbyggðu húsi. Sjá myndir í myndasafni. Kv. Siggi
»
06.09.2011 20:07:35 / siggi
Í dag var unnið við að setja glugga og útidyrahurð í Deildarárskóla. Áfram verður haldið á morgun. Myndir eru komnar í myndasafnið. Kv. Siggi
»
06.08.2011 09:27:37 / siggi
Ferð sem fara átti í Hukdufjöll í dag var ekki farin vegna lítillar þátttöku.
Siggi
»
18.07.2011 16:41:49 / siggi
Laugardaginn 6. ágúst er stefnt að eins dags gönguferð í Huldufjöll. Sjá nánar hér til hliðar undir "Ferðaáætlun 2011"
»
26.06.2011 22:09:56 / siggi
Myndir Grétars Einarssonar úr kvöldgöngu í Holtsgil s.l. fimmtudag eru komnar í myndaalbúmið.
Kv.Siggi
»
20.06.2011 22:31:13 / siggi
Kvöldganga verður í Holtsgil fimmtudagskvöldið 23. júní 2011. Mæting á bankaplanið í Vík kl. 20:00. Göngustjóri verður Grétar Einarsson. Verð kr. 500.- fyrir félagsmenn og kr. 700.- fyrir aðra.
Ferðanefndin.
»
01.06.2011 20:30:57 / siggi
Kvöldganga verður á Höttu fimmtudagskvöldið 2. júní 2011. Mæting á bankaplanið í Vík kl. 20:00. Göngustjóri verður Jón Hjálmarsson. Verð kr. 500.- fyrir félagsmenn og kr. 700.- fyrir aðra.
Ferðanefndin.
»
21.05.2011 11:12:21 / siggi
Ekki var talið fært í Lambárgil þegar ganga átti þangað s.l. fimmtudag. Var þá ákveðið að fara í Bæjargilið vestan við Fell og líkaði öllu göngufólkinu það mjðg vel. 12 manns tóku þátt í göngunni. Nokkrar myndir eru komnar í myndasafnið. Kv. Siggi
»
16.05.2011 23:35:25 / siggi
Farið verður í kvöldgöngu í Lambárgil n.k. fimmtudag 19. maí. Mæting á bankaplanið í Vík kl. 19:40 og hjá Álftagróf kl. 20:00. Sigurjón Eyjólfsson sér um leiðsögn. Verð kr. 500.- fyrir félaga og kr. 700 fyrir aðra.
Ferðanefnd.
»
05.05.2011 21:33:01 / siggi
.........á bankaplanið í kvöld. Tveir leiðsögumenn og eitt barn. Tveir gengu til sjávar og einn fór að sinna sauðburði. Vonum að veður og mæting verði betra næst. Kv. Siggi
»
04.05.2011 22:11:08 / siggi
.....verður farin fimmtudagskvöld 5 maí 2011. Lagt verður af stað frá bankaplaninu í Vík kl. 20:00. Bræður tveir frá Bólstað sjá um leiðsögn. Kveðja, Sigurður Hjálmarsson form.
»
09.04.2011 17:09:27 / siggi
Nú er unnið að smíði glugganna í Deildarárskóla. Smíðin er langt komin en aðeins var eftir að smíða opnanlegu fögin fyrir helgina. Gler og ísetningarefni er í pöntun og mun það verða til afgreiðslu eftir ca. viku. Kv. Siggi
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|